Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

     

 

Skipulags- og byggingarmál

 


 

Í skipulags- og byggingarlögum er kveðið á um að allt land sé skipulagskylt. Bygging húsa, mannvirkja og aðrar framkvæmdir sem breyta ásýnd umhverfisins eiga að vera í samræmi við skipulagsáætlanir.

 

Umhverfisráðuneytið fer með skipulags- og byggingarmálefni.

 

Skipulagsstofnun sinnir afgreiðslu skipulags- og byggingarmála, umhverfismati áætlana og mati á umhverfisáhrifum framkvæmda og veitir ráðgjöf og leiðbeiningar í framangreindum málaflokkum.

 

Sveitarstjórnir bera ábyrgð á gerð skipulagsáætlana og skal starfa sérstök skipulagsnefnd í hverju sveitarfélagi. Með nefndunum skal starfa skipulagsfulltrúi og byggingarfulltrúi.

 

Byggingar- og skipulagsfulltrúi fyrir Árneshrepp, Dalabyggð og Reykhólahrepp er Bogi Kristinsson.

 

Varðandi skipulags- og byggingarmál í Árneshreppi skal haft samband við oddvita um nánari upplýsingar.

 

Í Dalabyggð falla skipulags- og byggingarmál undir Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar. 

 

Í Reykhólahreppi fer skipulags-, bygginga-, húsnæðis- og hafnarnefnd með skipulags- og byggingarmál.

 

Ítarefni

Byggingarfulltrúi
Byggingarleyfi
Eignaskiptayfirlýsing
Eyðublöð
Aðalskipulag
Deiliskipulag
Skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997
Skipulagsreglugerð nr. 400/1998
Byggingareglugerð nr. 441/1998
Lög nr. 105/2006, um umhverfismat áætlana
Lög nr. 106/2006, um mat á umhverfisáhrifum
Umhverfisráðuneytið
Skipulagsstofnun