Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Silfurtún

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Silfurtún

Gunnarsbraut 8, Búðardal

Sími: 434 1218

Netfang: silfurtun@dalir.is

 

Undirbúningur að byggingu dvalarheimilis fyrir aldraða í Búðardal hófst upp úr 1980. Fyrsti heimilismaðurinn flutti inn 20. ágúst 1984.

 

Í fyrstu voru eingöngu leiguíbúðir, en hefur með tímanum orðið að dvalar- og hjúkrunarheimili.

  

Uppbygging Silfurtúns var samstarfsverkefni allra átta hreppanna í Dalasýslu.

 

En eftir sameiningu þeirra er núverandi eigandi og rekstraraðili sveitarfélagið Dalabyggð.

 

Á Silfurtúni eru í dag 15 heimilismenn.

 

Leyfi er fyrir 12 einstaklingum; 10 í hjúkrunarrými og 2 í dvalarrými. Auk þeirra eru þrír leigjendur.

Á Silfurtúni eru um 15 starfsmenn.