Barnavernd
Sveitarfélög gegna mikilvægu hlutverki í barnaverndarlögum og á vegum þeirra skulu starfa barnaverndarnefndir.
Íbúafjöldi að baki hverri barnaverndarnefnd skal ekki vera undir 1500 íbúum. Því er sameiginleg barnaverndarnefnd, Barnaverndarnefnd Borgarfjarðar og Dala, fyrir sveitarfélögin Dalabyggð, Borgarbyggð, Hvalfjarðarsveit og Skorradalshrepp.
Daglega framkvæmd barnaverndarmála er hjá Félagsþjónustu Borgarbyggðar. Þangað skal beina öllum tilkynningum og öðrum erindum ætluðum Barnaverndarnefnd Borgarfjarðar og Dala.
Barnaverndarnefndir skulu kanna aðbúnað, hátterni og uppeldisskilyrði barna og meta þarfir þeirra barna sem ætla má að búi við óviðunandi aðstæður, sæti illri meðferð eða eigi í alvarlegum félagslegum erfiðleikum.
Barnaverndarnefndir skulu eftir aðstæðum beita úrræðum samkvæmt barnaverndarlögum til verndar börnum og tryggja þannig hagsmuni og velferð þeirra.
|