Byggðasafn Dalamanna
Sveitasíminn
Árið 1912 var lagður sími frá Brú í Hrútafirði til Stykkishólms. Þar sem símalínan var lögð eftir Laxárdalnum og Suðurdali komst símasamband einnig á hér í Dölum. Í ár eru því 100 ára afmæli símnotkunar Dalamanna. En nokkrar breytingar hafa þó orðið á tækninni og útbreiðslunni á þessum tíma.
Í upphafi kom annars flokks símsstöð í Búðardal og þriðja flokks símstöðvar á Harrastöðum og Bugðustöðum. Síðar kom sími í Hvammssveit, Fellsströnd að Staðarfelli og í Saurbæinn. Og enn átti eftir að líða nokkur tími þar til símasamband kom á Skarðsströnd og Klofning.
Þó símsambandi væri komið á í sveitirnar var langt frá því að sími væri á hverjum bæ. Heldur voru símstöðvar í hverri sveit og þangað farið til að hringja og menn sóttir í símann á milli bæja.
Árið 1955 var lokið við að leggja síma á hvern bæ sem þess óskaði og blómatími sveitasímans upphófst. Sérstakar hringingar voru fyrir hvern bæ byggðar upp af stuttum og löngum hringingum. Og ekki þurfti úrskurð dómara til hlerana.
Byggðasafni Dalamanna hefur áskotnast gegnum árin símhringingar úr Hvammssveit, Fellsströnd, Klofningi og Saurbæ. Nú er ætlunin að safna því sem upp á vantar af hringingum, þ.e. Skógarströnd, Hörðudal, Miðdölum, Haukadal, Laxárdal og Skarðsströnd.
Hér til hægri má sjá eftir sveitum því sem safnast hefur hverju sinni. Þá vantar og upplýsingar um nokkrar símstöðvanna. Neðst á hverri síðu er hægt að senda Byggðasafni Dalamanna ábendingar, leiðréttingar eða annan fróðleik tengdan sveitasímanum í viðkomandi sveit. Sögur, myndir og munir tengdir sveitasímanum eru líka vel þegnir.
Í eru 40 ár eru liðin síðan sjálfvirk símstöð var sett upp í Búðardal, þ.e. árið 1972. Hún annaði 100 númerum og voru strax ríflega 60 tengd við hana. En innan við 30 ár eru síðan síðustu bæirnir hér í Dölum voru enn með sveitasíma, þ.e. Haukadalur, fram í Laxárdal og Skarðsströnd.
Byggðasafn Dalamanna, Laugum í Sælingsdal
Sími: 434 1328 / 430 4706 / 845 9952
Netfang: safnamal@dalir.is