Reglur Dalabyggðar um greiðslu kostnaðar
við sjálfboðavinnuverkefni
1. gr.
Sveitarstjórn ákveður í fjárhagsáætlun hvers árs framlag til sjálfboðavinnuverkefna. Auglýst er eftir umsóknum um framlög til verkefna í maí mánuði ár hvert.
2. gr.
Heimilt er að veita framlög til efniskaupa og vélavinnu.
Sækja skal um framlag til sjálfboðavinnuverkefna á eyðublöðum sem eru aðgengileg á vef Dalabyggðar og á skrifstofu.
Byggðarráð afgreiðir umsóknir.
Forsvarsmaður verkefnis skal hafa samráð við verkstjóra Dalabyggðar um framkvæmd verkefnisins.
3. gr.
Skilyrði fyrir framlögum
Almenn skilyrði fyrir úthlutun framlaga eru:
· Umsækjandi eigi lögheimili í Dalabyggð.
· Umsækjandi sé ekki í vanskilum við Dalabyggð.
· Umsókn fylgi lýsing á verkefni og kostnaðaráætlun.
4. gr.
Skilyrði fyrir greiðslum.
· Verkefnið sé unnið í samræmi við umsókn.
· Greiðslur verða aldrei hærri en framlögð áætlun.
· Greiðslur renna að jafnaði ekki til þess aðila sem að framkvæmdinni stendur heldur til þeirra aðila sem gefa út reikninga vegna vöru- eða þjónustukaupa.
· Reikningar skulu samþykktir af forsvarsmanni verkefnis áður en þeir berast sveitarfélaginu.
Staðfest af sveitarstjórn Dalabyggðar þann 2. maí 2012.