Laus störf í Dalabyggð og nágrenni
Allir þeir sem hafa í boði lögleg störf, innan þess svæðis að íbúar Dalabyggðar geti sótt þau, geta fengið atvinnuauglýsingar birtar hér endurgjaldslaust.
Deildarstjóri á leikskóla
Við leikskóladeild Auðarskóla er laus staða deildarstjóra frá og með 1. ágúst næstkomandi.
Umsóknarfrestur er til 31. maí nk. Nánari upplýsingar veitir Eyjólfur Sturlaugsson skólastjóri í síma 434-1133 eða á netfanginu eyjolfur@audarskoli.is.
Viðamiklar upplýsingar um leikskólann er að finna á www.audarskoli.is
Hjúkrunarforstjóri
Starf hjúkrunarforstjóra Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns í Búðardal er laust til umsóknar.
Umsækjendur skulu hafa háskólapróf í hjúkrunarfræði, nám og/eða reynsla í stjórnun er kostur. Ráðið verður í starfið frá 1. september 2012. Umsóknarfrestur er til og með 31. maí.
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á netfangið sveitarstjori@dalir.is eða á skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11, 370 Búðardal. Nánari upplýsingar veitir Sveinn Pálsson sveitarstjóri í síma 430 4700.
Grunnskólakennari
Við grunnskóladeild Auðarskóla í Búðardal eru lausar stöður grunnskólakennara frá og með næsta skólaári.
Meðal kennslugreina eru smíði, enska og almenn bekkjarkennsla. Umsóknarfrestur er til 26. maí.
Nánari upplýsingar veitir Eyjólfur Sturlaugsson skólastjóri í síma 434-1133 eða á netfanginu eyjolfur@audarskoli.is.
Viðamiklar upplýsingar um skólann er að finna á www.audarskoli.is
Leikskólakennari
Við leikskóladeild Auðarskóla eru lausar stöður leikskólakennara frá og með 1. ágúst næstkomandi.
Umsóknarfrestur er til 26. maí. Nánari upplýsingar veitir Eyjólfur Sturlaugsson skólastjóri í síma 434 1133 eða á netfanginu eyjolfur@audarskoli.is.
Viðamiklar upplýsingar um leikskólann er að finna á www.audarskoli.is
Flokksstjóri vinnuskóla
Starf flokksstjóra við Vinnuskóla Dalabyggðar er laust til umsóknar.
Æskilegt er að umsækjandi sé 20 ára eða eldri, hafi reynslu af að vinna með börnum og hafi bíl til umráða.
Umsóknarfrestur er til 18. maí 2012. Umsóknareyðublöð má finna hér á vef Dalabyggðar eða fá á skrifstofu Dalabyggðar.
Vinnuskóli
Vinnuskólinn verður starfræktur frá 11. júní til 31. júlí.
Hann er fyrir unglinga fædda árin 1996-1999. Daglegur vinnutími verður kl. 8-12 og 13-15 fimm daga vikunnar fyrir elstu börnin, en fjóra daga fyrir hin yngri.
Umsóknareyðublöð má finna hér á vef Dalabyggðar eða fá á skrifstofu Dalabyggðar. Umsóknarfrestur er til 18. maí 2012.
Tímabundin störf fyrir námsmenn og atvinnuleitendur
Vinnumálastofnun hefur samþykkt umsókn Dalabyggðar um tímabundin störf fyrir námsmenn og atvinnuleitendur en um er að ræða tvö störf í tvo mánuði, júní og júlí.
Verkefnin geta verið af ýmsum toga eftir áhugasviði umsækjenda svo sem umhverfisverkefni eða verkefni tengd menningar- og ferðamálum.
Umsóknareyðublöð má finna hér á vef Dalabyggðar eða fá á skrifstofu Dalabyggðar.
Nánari upplýsingar gefur sveitarstjóri. Umsóknarfrestur er til 18. maí 2012
Lyfja Búðardal - sumarstarfsmaður
Sumarstarfsmaður óskast í afleysingar í Lyfju, Búðardal.
Starfið felst í ráðgjöf til viðskiptavina við val á vörum, afgreiðslu á kassa, afgreiðslu og afhendingu lyfja gegn lyfseðli, afgreiðslu á lausasölulyfjum og ráðagjöf um val og notkun þeirra, auk annarra tilfallandi verkefna.
Reynsla af verslunarstörfum er æskileg og reynsla úr apóteki er kostur.
Nánari upplýsingar gefur Þórhildur lyfsali Lyfju í Borgarnesi. Sími 437 1168 eða netfang thorhildur@lyfja.is.
Sækja má um starfið á heimasíðu Lyfju, www.lyfja.is. Eða senda umsókn á heimilisfangið: Lyfja Borgarnesi, B.t. Þórhildur Sch. Thorsteinsson, Hyrnutorgi, 311 Borgarnes.
Silfurtún - aðstoðarmatráður
Óskað er eftir aðstoðarmatráði í mötuneyti Silfurtúns frá 1. maí 2012 til 1. mars 2013.
Um er að ræða 70% starf. Laun eru samkvæmt kjarasamningi SDS og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar veitir Sveinn Pálsson sveitarstjóri í síma 430 4700 eða Eyþór Gíslason í síma 898 1251.
Umsóknir sendist á netfangið sveitarstjori@dalir.is eða á skrifstofu Dalabyggðar, bt. sveitarstjóri, Miðbraut 11, 370 Búðardalur.
Þörungarverksmiðjan á Reykhólum - sumarstörf
Þörungaverksmiðjan rekur þurrkverksmiðju á Reykhólum þar sem þang og þari er þurrkaður i mjöl til útflutnings. Verksmiðjan gerir út eitt skip Gretti BA, tvo dráttarbáta, auk sex sláttupramma til þangskurðar.
Í verksmiðjunni er unnið á vöktum og felst vinnan í að mata hráefni inn í vinnsluna, pökkun á framleiðslunni, reglubundið viðhald og þrif.
Löndun fer fram öllu jöfnu utan hefðbundins dagvinnutíma og felst hún í losun þangs úr Gretti. flutnings á þangi upp á hráefnaplan með dráttarvélum, frágangur neta, umhirða dráttarvéla og annars búnaðar og vinnusvæða.
Verkstæði félagsins sinnir viðhaldi á eignum og búnaði félagsins eins og sláttuprömmum, verksmiðju og flutningatækjum.
Störfin standa báðum kynjum jafnt til boða.
Allar nánari upplýsingar veitir Einar Sveinn eða Þorgeir í síma 434 7740, tölvupóstfang info@thorverk.is
Framleiðsla og hráefnaöflun Þörungarverksmiðjunnar hf. er vottuð af TÚN og QAI sem lífræn. (CERTIFIED ORGANIC)
Auðarskóli - skólaliði í leikskóla
Starfshlutfall er 68,75% og vinnutími er frá 11.30 – 17.00. Næsti yfirmaður skólaliðans er aðstoðarleikskólastjóri. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Eftirfarandi er á starfssviði skólaliðans.
Þrif: Skólaliðin sér um öll hefðbundin dagþrif á leikskólanum. Þrifin fara fram þegar einstök svæði eru ekki í notkun. Aðstoðarleikskólastjóri og skólaliði gera í sameiningu áætlun (skema) um þrifin í upphafi skólaárs. Heilþrif eru ekki inni á verksviði skólaliða.
Eldhús: Móttaka á mat frá eldunaraðila í hádegi og frágangur í móttökueldhúsi að loknum hádegismat. Einnig aðstoð við framreiðslu og frágang í síðdegiskaffi.
Þvottahús: Allir tilfallandi þvottar á tuskum og fl. í þvottahúsi leikskólans.
Aðstoð vegna forfalla: Tímabundin aðstoð við umönnun í forföllum starfsmanna í umönnun.
Önnur störf: Einstaka störf sem skólastjóri/aðstoðarleikskólastjóri felur skólaliðanum; t.d. sendiferðir og fl.
Áhugasamir hafi samband sem fyrst við Eyjólf Sturlaugsson skólastjóra í síma 899 7037 eða á netfangið eyjolfur@audarskoli.is
Félagsþjónustan - félagsleg liðveisla
Starfsmaður óskast í félagslega liðveislu í Búðardal þrjá föstudaga í mánuði kl. 12-17. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Dala og Snæfellsness.
Nánari upplýsingar veitir Sveinn Pálsson sveitarstjóri í síma 430 4700 eða Inga Vildís Bjarnadóttir félagsráðgjafi í síma 433 7100.
Umsóknir sendist á netfangið sveitarstjori@dalir.is eða á skrifstofu Dalabyggðar, bt. sveitarstjóra, Miðbraut 11, 370 Búðardal.