Kjörfundur

DalabyggðFréttir

Kjörfundur í Dalabyggð vegna sveitarstjórnarkosninga verður haldinn laugardaginn 31. maí 2014 kl. 10-22 í Héraðsbókasafni Dalasýslu, Miðbraut 11, Búðardal.
Kjósendum ber að framvísa persónuskilríkjum á kjörstað.
Rétt útfylltur kjörseðill í Dalabyggð innheldur nöfn sjö aðalmanna og sjö varamanna.
Á efri hluta seðilsins skal rita með prentstöfum fullt nafn og heimilisfang sjö aðalmanna.
Á neðri hluta seðilsins skal rita með prentstöfum nafn og heimilisfang sjö varamanna í þeirri röð sem kjósandi kýs að þeir taki sæti.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei