Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Fasteignagjöld 2013 


 

Álagning

Álagningarseðla fasteignagjalda má nálgast rafrænt (pdf-skjöl) á þjónustusíðu opinberra aðila, Island.is. Aðgangur að Island.is er kennitala viðkomandi og aðalveflykill ríkisskattstjóra eða rafræn skilríki. Farið er í pósthólf og þar á álagningaseðillinn að finnast.

 

Íbúar 67 ára og eldri fá þá senda í pósti og einnig þeir sem þess óska sérstaklega.

 

Upplýsingar um álagningarhlutfall fasteignaskatts, lóðarleigu, afslátt af fasteignaskatti ellilífeyrisþega og öryrkja má sjá í gjaldskrá 2013 (PDF). Afsláttur ellilífeyrisþega og öryrkja er samkvæmt reglum Dalabyggðar þar að lútandi.

 

Nánari upplýsingar og aðstoð má fá á skrifstofu Dalabyggðar kl. 10-14, í síma 430 4700 kl. 9-13 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið dalir @ dalir.is.

 

Innheimta

Reikningana er hægt að skoða á íbúagátt.

 

Fasteignagjöldin verða innheimt með rafrænum greiðsluseðlum sem hægt er að greiða í netbanka. Gjaldendum er bent á þann möguleika að láta viðskiptabanka sinn sjá um beingreiðslur á fasteignagjöldum.

 

Fjöldi gjalddaga er almennt 6. Sá fyrsti 5. febrúar og sá síðasti 5. júlí. Ef heildargjöld greiðanda eru undir kr. 12.000 þá er einungis einn gjalddagi, 5. apríl. Veittur er 5% staðgreiðsluafsláttur séu öll gjöld greidd í síðasta lagi 15. febrúar.

 

Eindagi fasteignagjalda er 30 dögum eftir gjalddaga. Ef fasteignagjöldin eru ennþá ógreidd mánuði eftir eindaga verða þau send í innheimtu.

 

Nánari upplýsingar um staðgreiðsluafslátt, bankarreikning og innheimtu veitir Ingibjörg Jóhannsdóttir bókari í síma 430 4700 kl. 9-13. Einnig má senda fyrirspurn á netfangið ingibjorgjo @ dalir.is.