Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Byggðarráð, fundur nr. 112

Dags. 14.8.2012

112. fundur byggðarráðs
haldinn  í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, þriðjudaginn 14. ágúst 2012
og hófst hann kl. 17:00


Fundinn sátu:
Jóhannes Haukur Hauksson formaður, Ingveldur Guðmundsdóttir ritari, Guðrún Þóra Ingþórsdóttir varamaður og Sveinn Pálsson sveitarstjóri.

Fundargerð ritaði:  Sveinn Pálsson, sveitarstjóri.

 

Formaður leggur til að á dagskrá sé bætt dagskrárliðnum Brekka, Melur.
Samþykkt í einu hljóði.

 

Dagskrá:

 

1.  1208005 - Tölvuver Auðarskóla
Skólastjóri óskar eftir að fá að kaupa server-client kerfi í tölvuver grunnskólans skv. fyrirliggjandi kaupleigusamningi.
Heildarupphæð samnings er um 1,2 m.kr. þar af til greiðslu á árinu 2012 um 200 þ.kr.

Erindið samþykkt í einu hljóði.
   
2.  1208006 - Ágangur sauðfjár
Ábúendur á Erpsstöðum kvarta yfir verulegum ágangi sauðfjár á jarðir sínar neðan þjóðvegar nr. 60 og óska eftir að hlutast verði til um að létt verði á þessum ágangi. Vísa þau í 27. gr. fjallskilasamþykktar þar sem fram kemur að sveitarstjórn/fjallskilanefnd sé heimilt að fyrirskipa smölun ágangs-penings séu mikil brögð að ágangi búfjár úr sumarhögum í heimaland.

 

Byggðarráð telur ekki unnt að beita ofangreindu ákvæði fjallskilasamþykktar þar sem lausaganga sauðfjár er ekki bönnuð á svæðinu og varla hægt að fullyrða að aðliggjandi svæði séu ekki sumarhagar. Byggðarráð hvetur Vegagerðina og landeigendur til að girða vegi og lönd sem þörf er á að friða.
   
3.  1208007 - Réttur til niðurgreiðslu - leikskólapláss
Jónína K. Guðmundsdóttir dagforeldri óskar eftir að fá að hafa barn hjá sér áfram þrátt fyrir að það hafi fengið pláss á leikskóla. Þetta er í samræmi við óskir foreldra. Einnig óskar hún eftir að fá að hafa eigið barn í vistun tímabundið.

 

Byggðarráð samþykkir erindi Jónínu til áramóta en gerir ráð fyrir að vistunarmálin verði þá endurmetin.
   
4.  1207022 - Bréf um ýmis verk sem þarf að vinna hjá sveitarfélaginu
Svavar Garðarson sendir sveitarstjórn ábendingar um ýmis verk sem þörf er á að vinna í Búðardal.

 

Byggðarráð þakkar Svavari ábendingar og felur sveitarstjóra að framsenda erindið til verkstjóra og byggingarfulltrúa.
   
5.  1207019 - Umsóknir um framlög til eflingar tónlistarnáms og jöfnunar á aðstöðumun nemenda.
Bréf Jöfnunarsjóðs dags. 12. júlí 2012 þar sem kynntur er framgangur jöfnunar á aðstöðumun nema til tónlistarnáms.

Lagt fram til kynningar.
   
6.  1208010 - Beiðni um skólavist utan Dalabyggðar
Byggðarráð samþykkir umsókn um skólavist þriggja grunnskólabarna í grunnskólum á Akranesi.
   
7.  1204019 - Framkvæmdir 2012
Sveitarstjóri gerir grein fyrir framgangi framkvæmda.
   
8.  1208011 - Brekka og Melur
Byggðarráð leggur til að sveitarstjóra verði falið að gera tilboð í land, lóðarréttindi og fasteignir Brekku og Mels við Búðardal að frátöldu íbúðarhúsi. Byggingarfulltrúa verði falið að gera tillögu að leigulóð undir íbúðarhúsið og ganga frá lóðarleigusamningi við eiganda.
   

 


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00



Til baka