Fræðslunefnd, fundur nr. 45
Dags. 2.2.2012
45. fundur fræðslunefndar Dalabyggðar, haldinn í stjórnsýsluhúsinu 2. febrúar 2012, kl: 16:00.
Mættir: Elísabet Svansdóttir formaður, Ásdís Kr. Melsted, Ragnheiður Pálsdóttir, Unnur Ásta Hilmarsdóttir í forföllum Jóhönnu Halldóru Sigurðardóttur og Valgerður Ásta Emilsdóttir í forföllum Sigrúnar Hönnu Sigurðardóttur. Einnig sitja fundinn Guðrún Andrea Einarsdóttir fulltrúi starfsmanna, Arnar Eysteinsson fulltrúi foreldra, Eyjólfur Sturlaugsson skólastjóri.
Elísabet Svansdóttir ritar fundargerð.
Dagskrá:
1. Starfsáætlun Auðarskóla - til samþykktar.
Starfsáætlun lögð fram og samþykkt.
2. Umbótaáætlun vegna sjálfsmatsskýrslu Auðarskóla - kynning.
Umbótaáætlun kynnt og farið yfir umbótaþætti.
3. Tilraunaverkefni um ytra mat Auðarskóla.
Umbeðin gögn hafa verið send til matsaðila og heimsókn matsaðila er áætluð aðra viku í mars. Ákveðið að skoða nýjan matsþátt í stað foreldarasamstarfs.
4. Fundargerðir 4. og 5. funda skólaráðs Auðarskóla.
Fundargerðir skólaráð lagðar fram til kynningar. Fræðslunefnd fagnar auknu viðhaldi á húsnæði Auðarskóla og Dalabúð.
5. Ungmennaráð.
Stjórn nemendafélags Auðarskóla hafa valið sér fulltrúa í ungmennaráð, Angantýr Ernir Gumundsson og Bragi Þór Gíslason. Stefnt er að stofnfundi í byrjun apríl 2012.
6. Skólahreysti 2012 – umsókn til umsagnar.
Nemendur Auðarskóla verða ekki þátttakendur í Skólahreysti 2012. Því er ekki ástæða að verða við strykbeiðni. Í staðinn er því beint til sveitarstjórnar að skoða kostnað við að koma upp þrautabraut fyrir skólahreysti á leiksvæði Auðarskóla.
7. Önnur mál.
1) Dagur leikskólans verður mánudaginn 6. febrúar 2012.
2) Þemadagar eru í Auðarskóla 1. – 3. febrúar 2012. Foreldrum er boðið í heimsókn 3. febrúar til að skoða sköpunarvinnu nemenda.
3) Elín Huld Melsteð Jóhannesdóttir frá Auðarskóli hafnaði í 3. sæti í Nýsköpunarverkefni Landsbyggðavina. Þetta er flott frammistaða og Elínu er óskað til hamingju með árangurinn.
4) Umræða um fyrirkomulag Skólaþings.
5) Foreldrafélagið stefnir á að hafa forvarnarfræðslu.
Fleira ekki gert og fundi slitið klukkan 18.05
Elísabet Svansdóttir
Unnnur Ásta Hilmarsdóttir
Ragnheiður Pálsdóttir
Ásdís Kr. Melsted
Valgerður Ásta Emilsdóttir
Eyjólfur Sturlaugsson
Guðrún Andrea Einarsdóttir
Arnar Eysteinsson
Til baka