Byggðarráð, fundur nr. 76
Dags. 17.8.2010
Byggðarráð Dalabyggðar
76. fundur byggðarráðs Dalabyggðar, haldinn þriðjudaginn 17. ágúst 2010, í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal og hófst kl. 17:00.
Mætt voru: Eyþór Jón Gíslason, Jóhannes Haukur Hauksson og Ingveldur Guðmundsdóttir, sem ritaði fundargerð.
Fundargerðin var færð á tölvu.
Eftirfarandi tekið fyrir skv. dagskrá:
1. Fjármál Dalabyggðar.
Magnína Kristjánsdóttir, skrifstofustjóri, mætti á fundinn og gerði grein fyrir fjárhagsstöðu Dalabyggðar.
2. Skólamál.
Eyjólfur Sturlaugsson, skólastjóri, mætti á fundinn. Hann kynnti þá hugmynd að nemendur úr Tjarnarlundi verði keyrðir í Búðardal á föstudögum og fari þar í smíði og heimilisfræði. Hugmyndin var kynnt á fundi skólaráðs í júní. Skólastjóri mun kynna málið á fundi fræðslunefndar sem boðaður hefur verið 19. ágúst.
Byggðarráð samþykkir að hækka fjárheimild Auðarskóla fyrir árið 2010 vegna kostnaðar sem hlýst af auknum akstri, og er hækkuninni vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.
Samþykkt að fela formanni byggðarráðs að semja við skólabílstjóra vegna akstursins.
3. Ráðning sveitarstjóra.
Ráðningarsamningur við Svein Pálsson um starf sveitarstjóra í Dalabyggð lagður fram.
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að ráðningarsamningurinn verði samþykktur.
4. Tilboð vegna kantsteins og gangstéttar við Stekkjarhvamm.
Tvö tilboð bárust í verkið en kostnaðaráætlun vegna framkvæmdarinnar var 1.857.500 kr.
a) Megin ehf. : 1.968.830 kr. (105%)
b) Jóhann Á. Guðlaugsson ehf. : 2.174.400 kr. (117%)
Gert var ráð fyrir 2 millj. kr. í fjárhagsáætlun fyrir árið 2010 vegna framkvæmdarinnar.
Byggðarráð felur byggingarfulltrúa að semja við lægstbjóðanda.
5. Bréf frá Stéttarfélagi Vesturlands dags. 9. ágúst 2010, vegna makaskipta á eignarhlutum innan húseignarinnar að Miðbraut 11, Búðardal.
Fram kemur í bréfinu að stjórn Stéttarfélagsins er tilbúin til að skipta á skrifstofuherbergjum við Dalabyggð ef sveitarfélagið greiðir þann kostnað sem fylgir því að breyta 21m2 skrifstofuherbergi Dalabyggðar, sem boðið er í skiptum fyrir 24m2 skrifstofuherbergi Stéttarfélagsins, þannig að þar gætu verið tvær skrifstofur.
Byggðarráð leggur til að Dalabyggð skipti á skrifstofuhúsnæði við Stéttarfélag Vesturlands og taki á sig þann kostnað sem fylgir breytingunni sem er áætlaður um 200.000 kr.
6. Tölvupóstur frá Vegagerðinni dags. 21. júlí 2010, er varðar girðingarmál á Skógarströnd.
Lagt fram til kynningar, en tölvupósturinn tengist erindi frá Landgræðslufélagi Skógarstrandar um að sveitarfélagið lýsi yfir lausagöngubanni búfjár á Skógarströnd vegna skógræktargirðingar. Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að hún hafni því að lýsa yfir lausagöngubanni búfjár á Skógarströnd.
7. Bréf frá Skólahreysti dags. 14. júlí 2010, er varðar beiðni um fjárhagslegan stuðning.
Framlagt bréf frá Andrési Guðmundssyni f.h. Skólahreysti þar sem óskað er eftir stuðningi að upphæð kr. 50.000 vegna keppninnar árið 2010.
Erindinu hafnað.
8. Lóðarleigusamningur vegna Gunnarsbrautar 7, Búðardal.
Samningurinn samþykktur.
9. Lóðarleigusamningur vegna Dalbrautar 12, Búðardal.
Samningurinn samþykktur.
10. Önnur mál.
a) Samningar um veiðar á ref.
Samningar við refaveiðimenn renna út 31. ágúst 2010. Byggðarráð vísar samningunum til umfjöllunar í Umhverfisnefnd.
b) Lagfæringar á bílaplani við Tjarnarlund.
Byggðarráð leggur til að farið verði í framkvæmdina, en áætlaður kostnaður vegna hennar er 700.000 kr. og er fjármögnun vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar. Byggingarfulltrúa verði falið að vinna í málinu.
Fleira ekki tekið fyrir.
Fundargerðin upplesin og samþykkt í einu hljóði.
Fundi slitið kl. 19:45
_____________________________
Eyþór Jón Gíslason
_____________________________
Jóhannes Haukur Hauksson
_____________________________
Ingveldur Guðmundsdóttir
Til baka