Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Sveitarstjórn, fundur nr. 62

Dags. 28.7.2010

Árið 2010, miðvikudaginn 28. júlí kl. 22:00 var haldinn aukafundur í sveitarstjórn Dalabyggðar og var það símafundur.

 

Mætt voru: Halla S. Steinólfsdóttir, oddviti, Eyþór Jón Gíslason, Guðrún Jóhannsdóttir, Guðrún Þóra Ingþórsdóttir og Ingveldur Guðmundsdóttir sem ritaði fundargerð.

 

Oddviti bauð fundarmenn velkomna til fundar og setti fund.
Fundargerð var færð á tölvu.
Eftirfarandi var tekið fyrir:


Dagskrá:
1. Ráðning sveitarstjóra.

Til máls tóku: Allir.

Undanfarnar vikur hefur verið unnið að ráðningu sveitarstjóra Dalabyggðar og hefur Hagvangur haft umsjón með ráðningarferlinu. Að viðtölum loknum var sveitarstjórn sammála um að taka upp viðræður við Svein Pálsson. Fundarmenn ræddu drög að ráðningarsamningi og lagt er til að oddvita og formanni byggðarráðs verði falið að ganga frá ráðningarsamningi við Svein. Samningurinn verður lagður fram á næsta fundi sveitarstjórnar.

 

Samþykkt í einu hljóði.


Næsti reglulegi fundur sveitarstjórnar áætlaður þriðjudaginn 24. ágúst kl. 16:00.


Fundargerðin upplesin og samþykkt í einu hljóði.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 22:33


________________________    
Halla Steinólfsdóttir, oddviti


____________________________   
Eyþór Jón Gíslason       


____________________________   
Guðrún Jóhannsdóttir


______________________________
Guðrún Þóra Ingþórsdóttir

 

______________________________

Ingveldur Guðmundsdóttir



Til baka