Bæjarhátíð - Vestfjarðarvíkingurinn
Keppni sterkustu manna landsins Vestfjarðavíkingurinn er nú 20 ára. Keppnin fer fram dagana 4. - 7. júlí um Vestfirði og nágrenni. Enginn aðgangseyrir.
Dagskrá
Miðvikudaginn 4. júlí verður keppt í bóndagöngu við Hótel Stykkishólm kl. 12:30. Um borð í Baldri verður síðan keppt í réttstöðulyftu kl. 16:15.
Fimmtudaginn 5. júlí verður keppt í bryggjupollaburði kl. 13 á Friðþjófstorgi á Patreksfirði og kl. 18 verða tunnuhleðslur í sundlauginni á Tálknafirði.
Föstudaginn 6. júlí verður kútakast við Hótel Bjarkalund kl. 13 og á Reykhólum verða steinapressur á Reykhólum.
Laugardagur 7. júlí lýkur síðan keppninni í Búðardal. Uxaganga verður kl. 12 við Leifsbúð. Síðasta keppnisgreinin er síðan steinatök við Dalabúð kl. 16. Steinarnir í steintökunum koma úr bæjargilinu í Ytri-Fagradal.
Keppendur
-> Stefán Sölvi Pétursson
-> Páll Ingvi Logason
-> Úlfur Orri Pétursson
-> Jón Þór Ásgrímsson
-> Skúli Ármannsson
-> Georg Ögmundsson
-> Ari Gunnarsson
-> Andri Reyr Vignisson
-> Hafþór Júlíus Björnsson
-> Hannes Þorsteinsson
-> Danny Gerena
-> Þröstur Ólafsson
Stefán Sölvi og Úlfur Orri Péturssynir eru synir Ólafar Þóru Steinólfsdóttur frá Ytri-Fagradal og sonarsynir Guðlaugar Þorsteinsdóttur frá Svalbarða í Miðdölum.
Páll Ingvi Logason er sonarsonur Guðrúnar Eyjólfsdóttur frá Sólheimum í Laxárdal.