Söfnun á rúlluplasti 2013
Farnar verða fjórar söfnunarferðir um sveitarfélagið á árinu 2013, 21.-22. janúar, 29.-30. apríl, 22.-23. júlí og 25.-26. nóvember.
Nánari upplýsingar gefur Viðar í síma 894 0013.
Söfnun er lögbýliseigendum að kostnaðarlausu.
Þeir bændur sem vilja nota þessa þjónustu eða breytta fyrri skráningum þurfa að tilkynna það fyrir 20. janúar 2013.
Plastið skal haft á aðgengilegum stað og snyrtilega frágengið fyrir sorpverktaka. Baggabönd skal setja sér í glæra plastpoka.
Óheimilt er að setja rúlluplast í sorpgáma á grenndarstöðvum sveitarfélagsins. Opin brennsla úrgangs er óheimil þ.m.t. rúlluplasts skv. lögum nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs og reglugerð nr. 737/2003.