Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Íbúagátt

Spurningin

Ferðu í sauðburð í vor?

7  25. ágúst 2012  8

laugardaginn 25. ágúst 2012 frá kl. 12:00 til 16:00

Göngudagur Æskunnar

frá Hóli í Hörðudal
Göngudagur Æskunnar verður laugardaginn 25. ágúst. Ferðin hefst frá Hóli í Hörðudal kl. 12, þar verður sameinast í farartæki og keyrt inn Hólsbotn. Úr Hólsbotni verður gengið upp að Svínbjúg og kíkt yfir Hítarvatn. Þá gengið niður Burstadal. Þetta er leið sem á að vera á færi flestra og áætlaður göngutími eru þrír tímar. Ungmennafélagið Æskan verður síðan með heitt á kolunum við Árblik kl. 19 um kvöldið, þar sem hægt verður að grilla það sem hver vill.

laugardaginn 25. ágúst 2012 frá kl. 14:00 til 19:00

Röðulshátíð

í Röðli á Skarðsströnd
Laugardaginn 25. ágúst verður opið hús í samkomuhúsinu Röðli á Skarðsströnd kl. 14–19. Samkomuhúsið Röðull var byggt á árunum 1942-1944 af Ungmennafélaginu Vöku á Skarðsströnd. Þar voru haldnar fjölbreyttar skemmtanir og dansleikir á árum áður, þar á meðal víðfræg réttarböll. Kaffi, kökur og grillaðar pylsur verða í boði fyrir gesti á meðan birgðir endast. Handverk, krydd, sultur og fleiri heimagerðar afurðir af Skarðsströndinni verða til sölu.
Sjá vefslóð: http://www.dalir.is/frettir/nr/131210/

laugardaginn 25. ágúst 2012 frá kl. 20:00 til 22:00

Rökkurtónleikar

í Skarðskirkju
Rökkurtónleikar verða haldnir í Skarðskirkju á Skarðsströnd laugardaginn 25. ágúst, kl. 20. Hljómsveitin Stofubandið leikur dægurlagatónlist frá ýmsum tímum. Ókeypis er á tónleikana og allir velkomnir.
Sjá vefslóð: http://www.dalir.is/frettir/nr/131207/