Opnun sýningarinnar Dalir og Hólar 2012 - Ferðin.
Þema sýningarinnar að þessu sinni er FERÐ – verkin fjalla um ferð af einhverju tagi, raunverulega eða huglæga. Ferðin getur haft yfirfærða merkingu og vísað í ýmsar áttir, ferðin er ekki endilega áþreifanleg, en getur haft vísun í huglægt ástand eða tilfærslu.
Sýningarstaðir eru Staðarhóll í Saurbæ, Ólafsdalur í Gilsfirði, Vogaland í Króksfjarðarnesi og á Reykhólum. |