Tómstundir haust 2012
Barnakór tónlistardeildar Auðarskóla
Kór Auðarskóla hefur æfingar að nýju. Tilgangurinn er fyrst og fremst til gamans og að efla ýmsa þætti s.s. að fara eftir fyrirmælum, þjálfa einbeitingu, tilfinningu fyrir hrynjanda samhæfingu og ýmislegt fleira. Nemendur hafa frjálst val um þátttöku og æfingar eru þegar hafnar Kjörorð okkar er „Það er gaman að syngja saman“
Kórstjóri: Íris Björg Guðbjartsdóttir.
Hvenær: Börn fædd 1998-2001 fimmtudaga kl. 14:30 - 15:00.
Börn fædd 2002-2006 miðvikudaga 14:30 – 15:00.
Tímabil: samkvæmt skóladagatali.
Hvar: Stofa 3 í Auðarskóla, grunnskóladeild Búðardal.
Verð: Ókeypis, á vegum tónlistardeildar Auðarskóla.
Skráning: Íris Björg, sími 434 1133, netfang: irisbjorg@audarskoli.is