Félag eldri borgara í Dölum og Reykhólahreppi

Vor 2024


Félag eldri borgara í Dalabyggð og Reykhólahreppi stendur fyrir fjölbreyttu félagsstarfi í þessum tveimur sveitarfélögum.

Nýir félagar velkomnir!
Ljósmynd: Sigmundur Geir Sigmundsson

Ljósmynd: Sigmundur Geir Sigmundsson

Hvetjum 60 ára+ og aðstandendur að gerast meðlimir að Facebook hóp félagsins sem heitir:
Félag eldri borgara í Dalabyggð og Reykhólahreppi.   <— smellið hér

Hægt að hafa samband við tómstundafulltrúa ef fólk vill fá frekari upplýsingar: Jón Egill 867-5604

Stefnt er að því að halda boccia námskeið í mars, verður auglýst síðar.

Félag eldri borgara vill líka koma því á framfæri að vinna er hafin við að skipuleggja ferð á tónleika á vormánuðum.

Einnig er vinna hafin í skipulagningu sumarferðarinnar 2024, stefnt er á 2 daga ferð í júlí, á slóðir Guðrúnar frá Lundi.

Samtal um málefni eldri borgara, er viðburður sem verður þriðjudaginn 6. Febrúar kl. 15:00, og er haldinn í Nýsköpunarsetrinu að Miðbraut 11. Markmið fundarins er að ræða málefni eldri borgara í sveitarfélaginu.

Mánudagar

Gönguhópurinn Stormur gengur rösklega frá Rauða kross húsinu kl.10:30 á mánudögum og föstudögum. Gangan endar svo í kaffi og spjalli við heimilisfólkið á Silfurtúni á mánudögum.
Lína er með ræktartíma fyrir 60 ára+ kl.11:30.

Miðvikudagar

Lína er með ræktartíma fyrir 60 ára+  kl.11:00

Fimmtudagar

Dagskrá hér neðar.

Föstudagar

Gönguhópurinn Stormur gengur rösklega frá Rauða kross húsinu kl.10:30 og endar þar aftur í kaffisopa.

 

Dagskrá á fimmtudögum:

25. janúar:
Félagsvist Rauða kross húsið, kl: 13:30

8. febrúar:
Valdís með spurningarkeppni í Rauða kross húsinu kl: 13:30

22.febrúar:
Bingó á Barmahlíð, kl: 14:00 (Lagt af stað frá Silfurtúni kl.13:00)

7. mars:
Félagsvist í Tjarnarlundi kl: 13:30 (Lagt af stað frá Silfurtúni kl.13:00)

14. mars:
Aðalfundur félags eldri borgara í Rauða kross húsinu kl: 13:30

21. mars:
Bingó á Silfurtúni kl: 13:30

4. apríl:
Valdís Einarsdóttir með sögustund í Tjarnarlundi kl: 13:30 (Lagt af stað frá Silfurtúni kl.13:00)

18. apríl. Fyrirhugað:
Hittingur á Laugum, matur með eldriborgurum frá Dölum, Reykhólum og Ströndum. Tímasetning auglýst síðar.

Mikilvægt er að fólk láti vita ef það vill koma með í ferðir og þarf far. Þá skal hringja í Jón Egil í síma 867 5604.

Athugið að öll dagskrá hér er birt með fyrirvara um breytingar.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei