Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Íbúagátt

Spurningin

Ferðu í sauðburð í vor?
6. ágúst 2012 11:33

Svavar Knútur á Laugum

  
Svavar Knútur Kristinsson verður með tónleika á Laugum í Sælingsdal fimmtudaginn 9. ágúst, kl. 21.

 

Á tónleikunum mun Svavar leika úrval frumsaminna laga úr eigin safni og syngja um lífið og tilveruna.

 

Matreiðslumaður hótelsins mun bjóða upp á uppáhaldsrétt Svavars, bjúgu frá Stað í Reykhólasveit með nýjum íslenskum kartöflum og uppstúf. Einnig verða sérvaldir ostar úr héraði á boðstólum.

 

Salurinn opnar kl. 20. Borðapantanir eru í síma 444 4930.

 

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis.

 

Hótel Edda Laugum