Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Íbúagátt

Spurningin

Ferðu í sauðburð í vor?
4. ágúst 2012 08:00

Ólafsdalshátíð

  
Árleg Ólafsdalshátíð verður haldin sunnudaginn 12. ágúst kl. 13.00 - 17:30. Aðgangur er ókeypis.

 

Gestum er bent á að netsamband er stopult í Ólafsdal og því skynsamlegt að hafa með sér lausafé til að versla eða taka þátt í happdrætti. 

Dagskrá

10:30

Undanfari hátíðar. Gönguferð í Skálina.

Gengið upp í skálina í Ólafsdal og spáð í örnefni, byggingar og staðhætti í Ólafsdal. Ljósmyndir sem teknar voru úr Skálinni um 1900 hafðar til hliðsjónar.

12:00 Ólafsdalshappdrætti

Sala á miðum í Ólafsdalshappdrættinu hefst. Miðaverð er kr. 500. Fjöldi veglegra vinninga.

12:00 Ólafsdalsmarkaður og sýningar
Ólafsdalsgrænmeti, fjölbreytt handverk, ostar frá MS, Erpsstaðaís, kræklingur, ber, hestar teymdir undir börnum, stuttur reiðtúr og margt fleira. Kaffiveitingar.
Sýningin Ólafsdalsskólinn 1880-1907 á fyrstu hæð skólahússins.
Dalir og Hólar FERÐ: Listsýning á annarri hæð skólahússins.
13:00

Hátíðardagskrá 

Kynnir er Jóhannes Haukur Jóhannesson, leikari.
Ávörp flytja Svavar Gestsson stjórnarmaður í Ólafsdalsfélaginu, Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Eyjólfur Sturlaugsson skólastjóri Auðarskóla.
Hljómsveitin Moses Hightower.
Jóhannes Haukur Jóhannesson fer með gamanmál.

Þorgeir Ástvaldsson útvarpsmaður flytur erindið Ólafsdalur 1906-1916, minningar frænda míns.

15:00 Stígvélaði kötturinn
Leikhópurinn Lotta sýnir Stígvélaða köttinn
16:30 Dregið í Ólafsdalshappdrættinu
17:00

Eyðibýli á Íslandi

Steinunn Eik Egilsdóttir arkitektanemi og Gísli Sverrir Árnason R3 ráðgjöf kynna rannsóknarverkefnið Eyðibýli á Íslandi. Áhugaverð hús á Vesturlandi.

13:00 

Kaffihlaðborð að Skriðulandi.

 

Ólafsdalsfélagið

Dagskrá PDF