Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Íbúagátt

Spurningin

Ferðu í sauðburð í vor?
16. ágúst 2011 19:00

Íslandsmeistaramót í hrútadómum

Níunda Íslandsmeistaramótið í hrútadómum verður haldið laugardaginn 20. ágúst kl. 14 í Sauðfjársetrinu Sævangi.

 

Hrútadómarnir fara þannig fram að Jón Viðar Jónmundsson ráðunautur og dómnefnd  meta fjóra íturvaxna hrúta með nútíma tækjum og tólum og raðar þeim í gæðaröð.

 

Síðan reyna keppendur sig við matið á hrútunum með hendur og hyggjuvit að vopni og reyna að komast að sömu niðurstöðu og dómararnir.

 

Þeir óvönu láta duga að raða hrútunum í sæti frá eitt til fjögur og færa rök fyrir máli sínu. Þeir vönu fara hins vegar eftir stigakerfi sem bændur og sauðfjáraðdáendur gjörþekkja.

 

Afar veglegir vinningar eru í boði fyrir sigurvegara í báðum flokkum. Til dæmis hafa þrír efstu í flokki vanra þuklara meðal annars fengið nokkra skammta af hrútasæði frá Sauðfjársæðingastöð Vesturlands.

 

Nóg annað verður og um að vera. Ókeypis verður inn á sýningu Sauðfjársetursins, líf og fjör utandyra og skemmtiferðir í dráttarvélavagni. 

 

Gestir þurfa ekki að hafa áhyggjur af hungri. Í hádeginu verður kjötsúpa og síðan veglegt kaffihlaðborð meðan á keppninni stendur. Um kvöldið verður síðan hægt að kíkja á veglegt matarhlaðborð hjá Café Riis á Hólmavík.

 

Um kvöldið verður haldið Þuklaraball í félagsheimilinu á Hólmavík með hljómsveitinni Upplyftingu. 
 

Heimasíða Sauðfjárseturs á Ströndum