Stjórnsýsluhús Dalabyggðar,
    Miðbraut 11,
    370 Búðardal,
    kennitala: 510694-2019
    Sími: 430 4700
    Fax: 434 1212
    dalir@dalir.is

Ættarmót í Dölum


 

Dalirnir eru mjög vinsælir fyrir ættarmót enda staðsetning þeirra ákjósanlega þar sem Norðurland, Vestfirðir og Vesturland koma saman.

Ekki er heldur langt að keyra af höfuðborgarsvæðinu.

 

Á Laugum í Sælingsdal er hótel, sundlaug, íþróttahús og því ákjósanleg aðstaða fyrir ættarmót. Enda líður varla sú helgi yfir sumarið að ekki sé þar ættarmót.

 

Fjögur félagsheimili eru til útleigu fyrir ættarmót. Þau eru dreifð um alla sýsluna og misstór. Hægt er að tjalda í næsta nágrenni við þau öll. Einnig eru aðrir gistimöguleikar í nágrenni við flest þeirra. Félagsheimilin eru Árblik í Miðdölum, Dalabúð í Búðardal, Staðarfell á Fellsströnd og Tjarnarlundur í Saurbæ.

 

Minni ættarmót er síðan hægt að halda í samráði við minni gististaði um alla sýslu, allt eftir þörfum hvers og eins.